29.9.11

Allsnægtir


Allsnægtir eru allt í kring. Móðir jörð er yfirfull af allsnægtum, allur maturinn sem við borðum; ávextir, grænmeti, baunir, kjöt, húsaskjólið sem við byggjum; timbur, steinn, leir, fatnaðurinn sem við klæðumst; bómullin, ullin, silki, perlur, gull og demantar. Náttúran birtir allsnægtir í allri sinni dýrð; fossarnir, sjórinn, vatnið, græni liturinn, trén, fjöllin, veðrið, frumkraftarnir, sólin, jörðin, pláneturnar allt er endalaust. Tilfinningin er frelsi, sveigjanleiki, gleði og töfrar. Við föðmum heiminn.
Við erum rík af allsnægtum innra með okkur, eins og persónutöfrar, samkennd,  fallegar tilfinningar og eiginleikarnir sem við höfum. Það er svo mikilvægt að tengjast þessari góðu tilfinningu, þrátt fyrir að við upplifum stundum skort í raunveruleikanum. Allt er breytingum háð. Peningar koma og fara,en skortur verður oft fyrst til innra með okkur. Við hættum að njóta og sjá við verðum hrædd og kvíðinn og sú tilfinning eingöngu viðheldur skortinum. 
Það er mikilvægt að vera þakklátur fyrir það sem við höfum. Sjá allt það fallega í kringum okkur sem kostar ekkert og er alltaf til staðar, ástin, brosið, náttúran, yndisleg samskipti, dans, tónlist, sköpun og gleði. Við höfum alltaf tækifæri til að nýta gjafir okkar og hæfileika til að stefna inn í allsnægtir. Við eigum það skilið. Allir eiga það skilið. Byrjum að finna allsnægtir núna. Það er gott að vera þakklátur og brosa og sjá allt það fallega í lífinu. Við eigum að leita að ríkidæminu hið innra áður en það fer að birtast í raunveruleikanum. 

24.1.11

Að komast úr hýðinu


Það er komið nýtt ár. Það gefur alltaf von um breytingu til batnaðar, ný von, nýjar upplifanir. Tækifæri til að hreinsa til og stefna nær draumum sínum. Ég er full af jákvæðni fyrir komandi ár, en það hefur verið einstaklega dimmt yfir í janúar og mikil lægð að það er eins og ég hafi farið inn í hýði. Stundum er ágætt að hvíla sig og vera mikið inn á við en ég finn einstaklega hvað ég þarfnast náttúrunnar og birtu. Það er líkt og hafi verið þoka yfir öllu. Það þarf að kveikja á neistanum, tendra hann og hlúa að honum. Hlusta á innri röddina og fylgja henni. Ég fór í göngutúr í Öskjuhlíð um helgina, þrátt fyrir blautan dag og mistur var það nákvæmlega það sem ég þurfti. Endurnýja orkuna, anda að sér ferska loftinu, setjast á stein, horfa á sígrænu trén dansa með vindinum, finna mosann undir fótunum, láta rigninguna og vindinn hreinsa hugann. Það er allt svo skýrt í náttúrunni, þar er núið, allt svo rólegt og kyrrt. Leið til að hlúa að sér.