Innsæis myndir
Á þessari síðu langar mig að deila myndsköpun minni sem ég kalla innsæis myndir. Myndirnar koma og verða til án þess að ég hafi upphaflega skýra mynd af þeim. Þær birtast og koma fram í sköpunarferlinu og koma mér sífellt á óvart. Þegar ég fæ hugmynd sem mig langar að birta, þá vinn ég með hana, leyfi henni að þróast og taka breytingum þar til myndin verður til. Hún lifnar við og verður sjálfstæð og oft ólík upphaflegri hugmynd. Sköpunarkrafturinn ræður för.Mér finnst gott að hugleiða áður en ég sest niður og skapa og leyfa innra landslaginu og innsæinu að taka yfir.
Ég leitast eftir að tengjast mínum sálarkjarna, birta það bjarta og góða og markmiðið er að listin spegli það, list sálarinnar.
Áhugasamir um myndirnar hafi samband á solveigkatrin@gmail.com
 |
Goddess of light
akrýl/olía á striga |
 |
Spirit of Air
pastel á velour |
 |
Spirit of the forest
akrýl/olía á striga |
 |
Tree goddess
pastel á velour |
 |
Goddess of power
pastel á pappír |
 |
Angel of light
pastel á velour |
 |
Mother earth
pastel á pappír |
 |
The light in nature
pastel á pappír |
 |
Harmony Mandala
trélitir á pappír
|
 |
Mandala
blönduð tækni |