29.9.11

Allsnægtir


Allsnægtir eru allt í kring. Móðir jörð er yfirfull af allsnægtum, allur maturinn sem við borðum; ávextir, grænmeti, baunir, kjöt, húsaskjólið sem við byggjum; timbur, steinn, leir, fatnaðurinn sem við klæðumst; bómullin, ullin, silki, perlur, gull og demantar. Náttúran birtir allsnægtir í allri sinni dýrð; fossarnir, sjórinn, vatnið, græni liturinn, trén, fjöllin, veðrið, frumkraftarnir, sólin, jörðin, pláneturnar allt er endalaust. Tilfinningin er frelsi, sveigjanleiki, gleði og töfrar. Við föðmum heiminn.
Við erum rík af allsnægtum innra með okkur, eins og persónutöfrar, samkennd,  fallegar tilfinningar og eiginleikarnir sem við höfum. Það er svo mikilvægt að tengjast þessari góðu tilfinningu, þrátt fyrir að við upplifum stundum skort í raunveruleikanum. Allt er breytingum háð. Peningar koma og fara,en skortur verður oft fyrst til innra með okkur. Við hættum að njóta og sjá við verðum hrædd og kvíðinn og sú tilfinning eingöngu viðheldur skortinum. 
Það er mikilvægt að vera þakklátur fyrir það sem við höfum. Sjá allt það fallega í kringum okkur sem kostar ekkert og er alltaf til staðar, ástin, brosið, náttúran, yndisleg samskipti, dans, tónlist, sköpun og gleði. Við höfum alltaf tækifæri til að nýta gjafir okkar og hæfileika til að stefna inn í allsnægtir. Við eigum það skilið. Allir eiga það skilið. Byrjum að finna allsnægtir núna. Það er gott að vera þakklátur og brosa og sjá allt það fallega í lífinu. Við eigum að leita að ríkidæminu hið innra áður en það fer að birtast í raunveruleikanum.