28.10.10

Lífið er ævintýri

Ég sé lífið sem ævintýri. Auðvitað eru ekki öll ævintýri góð en ævintýri eru jú misjöfn og ólík. Við förum í gegnum hæðir og lægðir með tilfinningum okkar og misgóðir atburðir gerast sem við höfum kannski ekki alltaf stjórn á. En það sem skiptir máli er hvernig við bregðumst við aðstæðunum. Sjáum við þær sem hindranir eða áskoranir. Sumir atburðir þroska okkur og bera með sér leyndar gjafir, eftir að við höfum farið í gegnum þær. Aðrar styrkja okkur. Allt fer eftir því hvernig við sjáum hlutina. Sumir festast í neikvæðni og ná sér ekki upp úr hjólförunum og þá verður það eins og poki fullur af byrðum. Við ákveðum hvort við tökust á við áskorunina og sjáum hana sem fjall sem verður að klífa eða dreka sem þarf að sigra. Annað er að setjast niður og ákveða að þetta sé hlutskipti mitt og gera ekki neitt, verða fórnalamb. Unnin áskorun gefur okkur styrk og reynslu sem er nauðsynleg til að halda áfram og við fáum aukin töframátt. Við erum nefnilega okkar eigin gæfusmiðir. Hvert viljum við fara? Hvað viljum við gera með tíma okkar og orku? Hvert stefnum við? Við erum öll fædd með ákveðnar gjafir og hæfileika sem við getum ákveðið að slípa og nýta eða við efumst um okkar eigið ágæti. Við mennirnir erum nefnilega svo oft föst í neikvæðum tilfinningum persónuleikans. Við treystum ekki og efumst, óttinn er sterkur og heldur aftur af okkur. Allt er þetta partur af drekunum innra með okkur sem við þurfum að temja. Allt of oft hafa þessir drekar náð yfirhöndinni og við látum þá stjórna okkur. Hvernig temjum við drekana? Persónuleikafjötrana, óttann, óöryggið, efann, neikvæðnina? Það er stór spurning. Ég trúi að það er ein af áskorunum af lífinu að takast á við þá, takast á við sjálfan sig, reyna að gera sig að betri manneskju. Finna frelsið, gleðina, kraftinn sinn og gjafirnar sínar þannig að við náum að skína og geisla framan í heiminn. Þá væri heimurinn betri heimur. Ég hef alltaf haft þessa setningu Ghandi að leiðarljósi "Be the change you wish to see in the world". Vertu breytingin sem þú vilt sjá í heiminum. Það eina sem við getum breytt erum við sjálf. Við getum gert heiminn að betri heimi og ákveðið að lífið er ævintýri.

1 ummæli:

  1. Frábær færsla Sólveig! Og til lukku með bloggið, eins og pabbi hefði sagt ;)

    Akkurat, við þurfum að teymja drekana, beisla kraft þeirra og spyrja; hvernig get ég komið góðu til leiðar? Og hafa hugrekki til að stíga skrefin eitt í einu...

    Bestu kveðjur
    Björn Brynjar

    SvaraEyða