Vetur er genginn í garð, tunglið fer minnkandi og ég finn þörf fyrir að koma einhverju frá mér, skrifa, blogga, skapa. Kannski er þetta einmitt góður tími. Þegar sólin dregur sig í hlé og vetur konungur kemur fram er einmitt tími til að fara inn á við og að deila. Hef ákveðið að hlusta á innsæið mitt og fylgja þessari tilfinningu. Mikið um hugmyndir í barneignafríi, mikil gróska og sköpun. Gott að fylgja því. Eins og sést á inngangnum er ég að byrja í námi, fjarnámi í skóla Lynn Andrews sem örugglega ekki margir þekkja hér á Íslandi. En hún varð lærlingur Indjánakonununnar Agnes Whistling Elk í mörg ár í fornri visku frumbyggja um orku, heilun og leið konunnar til máttar og kraftar. Hún er ein af 44 konum sem varðveita visku frumbyggjakvenna í helgu systralagi skjaldanna (Sisterhood of the Shields) eina hvíta konan þar sem hefur það markmið að færa viskuna til okkar í hinum vestræna heimi. Við sem höfum svo oft gleymt tengslum okkar við móðir jörð og kraftinum og mættinum hið innra. Hún skrifaði síðan 19 bækur um upplifanir sínar og lærdóm í þekktum metsölubækum í Bandaríkjunum.
Ég hef dottið inn í þessar bækur og upplifanir og algerlega heillast af þessum heimi og finn mikinn samhljóm við viskuna sem þar býr. Enda hef ég ákveðið að fara í þetta fjarnám sem er fjögurra ára nám í þessum fræðum sem kallast Shamanismi. Ég ætla að deila reynslu minni inn í þennan töfraheim orku og máttar ásamt öðrum hugleiðingum. Ég staðfastlega trúi á að við sköpum okkar líf og hef ég ákveðið að fylgja mínum draumum og láta þá rætast. Draumarnir eru vegvísir minn. Við erum skaparar í lífi okkar. Það eru töfrar.
Til hamingju með síðuna elsku vinkona. Spennandi tímar!!!...hlakka til að lesa um og upplifa töfrana.
SvaraEyðaKærleiksknús : )
Jibbí, en skemmtilegt elsku Sólveig mín :) :D
SvaraEyðaÉg hlakka svo til að fá að fylgjast með töfrakonunni*