Er að blogga á ensku, endilega fylgist með***
http://spiritualbohem.blogspot.com/
26.9.13
29.9.11
Allsnægtir
Við erum rík af allsnægtum innra með okkur, eins og persónutöfrar, samkennd, fallegar tilfinningar og eiginleikarnir sem við höfum. Það er svo mikilvægt að tengjast þessari góðu tilfinningu, þrátt fyrir að við upplifum stundum skort í raunveruleikanum. Allt er breytingum háð. Peningar koma og fara,en skortur verður oft fyrst til innra með okkur. Við hættum að njóta og sjá við verðum hrædd og kvíðinn og sú tilfinning eingöngu viðheldur skortinum.
Það er mikilvægt að vera þakklátur fyrir það sem við höfum. Sjá allt það fallega í kringum okkur sem kostar ekkert og er alltaf til staðar, ástin, brosið, náttúran, yndisleg samskipti, dans, tónlist, sköpun og gleði. Við höfum alltaf tækifæri til að nýta gjafir okkar og hæfileika til að stefna inn í allsnægtir. Við eigum það skilið. Allir eiga það skilið. Byrjum að finna allsnægtir núna. Það er gott að vera þakklátur og brosa og sjá allt það fallega í lífinu. Við eigum að leita að ríkidæminu hið innra áður en það fer að birtast í raunveruleikanum.
24.1.11
Að komast úr hýðinu
Það er komið nýtt ár. Það gefur alltaf von um breytingu til batnaðar, ný von, nýjar upplifanir. Tækifæri til að hreinsa til og stefna nær draumum sínum. Ég er full af jákvæðni fyrir komandi ár, en það hefur verið einstaklega dimmt yfir í janúar og mikil lægð að það er eins og ég hafi farið inn í hýði. Stundum er ágætt að hvíla sig og vera mikið inn á við en ég finn einstaklega hvað ég þarfnast náttúrunnar og birtu. Það er líkt og hafi verið þoka yfir öllu. Það þarf að kveikja á neistanum, tendra hann og hlúa að honum. Hlusta á innri röddina og fylgja henni. Ég fór í göngutúr í Öskjuhlíð um helgina, þrátt fyrir blautan dag og mistur var það nákvæmlega það sem ég þurfti. Endurnýja orkuna, anda að sér ferska loftinu, setjast á stein, horfa á sígrænu trén dansa með vindinum, finna mosann undir fótunum, láta rigninguna og vindinn hreinsa hugann. Það er allt svo skýrt í náttúrunni, þar er núið, allt svo rólegt og kyrrt. Leið til að hlúa að sér.
28.12.10
Ljós í myrkri
Hátíð ljóss og friðar nú um jól, merkilegur tími og helgur. Einnig sá dimmasti en ljósin í myrkrinu lýsa hann upp enda fögnuður vegna fæðingu frelsarans.
Um vetrarsólstöður er styrsti dagur ársins, myrkrið er sem mest en vonin um hækkandi sól handan við hornið. Í myrkrinu er hægt að skoða eigin skugga til að hreinsa þá, ásamt því að skoða ljósið og væntingar fyrir komandi ár. Þá er hægt að skrifa niður allt það sem við viljum losa okkur við, allt það sem er ekki að þjóna okkur lengur, gamla vana, neikvæðar hugsanir, gamlar sorgir, allt það neikvæða hvort sem það er huglægt, tilfinningalegt, andlegt eða veraldlegt. Síðan er hægt að gera smá athöfn, kveikja á kerti, skapa stemningu, biðja og brenna svo blaðið. Leyfa eldinum að eyða því í efninu líkt og þú sérð það eyðast úr eigin lífi. þannig setur maður ásetning sinn og ósk í verk.
Þá næst skrifum við niður allt það sem við viljum upplifa og finna á nýju ári, allt það góða sem við viljum draga til okkar, það getur verið tilfinning, ástand, veraldlegt, hvaðeina sem við þörfnumst. Það er gott að skrifa það niður, setja það niður í efnið sem markmið og bæn inn í nýtt ár. Setjumst svo niður í kyrrð og ró og finnum innra með okkur hvernig tilfinning það er að hafa þetta góða allt í kringum sig og innra með sér. Sjá það fyrir sér, hugleiða inn á það og vita að það mun koma. Geyma þetta blað, jafnvel skreyta það myndum og hengja upp. Við eigum það besta skilið. Finnum draumana okkar og förum björt inn í nýtt ár með hækkandi sól.
13.12.10
Hugleiðing inn í daginn
Fyrsta hugsunin setur tón dagsins. Hvernig á hann að hljóma? Hvaða upplifun leita ég eftir í dag?
Ég ræð hvernig ég bregst við aðstæðum þó ég stjórna ekki öllum atburðum dagsins. Ég er meðvituð um tilfinningar mínar og hugsanir ef ég kýs að vera áhorfandinn. Áhorfandinn er í jafnvægi og er með yfirsýn. Hann er alltaf í núinu eins og meistari sem dvelur í visku og kærleika, þar er mátturinn. Allar athafnir og gjörðir eru góðar ef þær koma frá þessum stað. Kærleikur, viskan og mátturinn ætti að vera órjúfanleg heild. Allt sem sprettur þaðan er heilt. Við speglum innra jafnvægi í samskiptum okkar, orðum og athöfnum, við látum ekki stjórnast af egóinu, tilfinningunum og dramanu. Við erum okkar eigin meistarar og speglum það góða. Þarna er friður og þarna er gott að vera. Ég leitast eftir að vera betri í dag en í gær.
8.12.10
Árstíðir breytinga

Verum meðvituð að allt er breytingum háð líkt og náttúran sem fer sinn hring, allt hefur sinn tíma og allt tekur enda.
Mig langar að deila þessari fallegu sögu sem ég fann á netinu, slóðin er
5.12.10
Nýtt tungl og sjálfskoðun
Í dag er nýtt tungl. Sést ekki á himni heldur ber fyrirheit um vaxandi hálfmánaljós þar til það nær fyllingu sinni á vetrarsólstöðum þann 21.desember. Síðasta fulla tungl ársins. Allt í sinni eilífu hringrás náttúrunnar, jólin að koma á ný með vonir um góðar fjölskyldustundir, kærleika, vináttu, góðan mat, gjafir og gleði.
Ég finn alltaf fyrir hve jólatíminn og skammdegið færir mann nær inn á við, líkt og björninn sem fer í hýðið. Þetta er mjög andlegur tími, tími hugleiðinga, hátíð ljóssins, uppgjör fyrir árið sem er senn á enda og væntingar fyrir nýja árið sem er handan við hornið. Árið fer sinn hring, og hver árstíð hefur sínar gjafir. Þessi tími gefur manni innsýn og sjálfsskoðun er ríkjandi. Það er líkt og þegar allt er í dvala í náttúrunni leitum við í hlýjuna inni og að auki lítum í eigin barm. Þetta er góður tími að fylgja því og vera meðvitaðri um innra landslag sitt. Gott er að skoða markmið næsta árs og sjá hvaða þætti maður vill breyta og bæta. Hvað vil ég taka inn í nýja árið? Til að vera í einstöku flæði með náttúruöflunum er einmitt hagstæður tími í dag. Forfeður okkar litu það heillamerki að hefja eitthvað nýtt á nýju vaxandi tungli og settu fram ósk og bænir sem eiga að ná fram á fullu tungli. Á nýju tungli er einstaklega hagstætt að skoða það sem við viljum draga inn í líf okkar. Þannig dregst það góða inn í líf okkar líkt og vaxandi máninn. Þá erum við að vinna með rytma náttúrunnar, erum í samhljómi við það sem gerist umhverfis okkur.
Það er gott að skoða það góða sem hefur komið til okkar á árinu þannig að það fái að vaxa og dafna áfram og alla reynsluna sem hefur gefið okkur þroska og vöxt. Núna er tími til að gleðjast og njóta aðventunar og með þakklæti í hjarta skoða þær væntingar og óskir sem við setjum fram inn í nýja hringrás lífs okkar. Megi birtan og kærleikurinn vaxa innra með okkar meðan lengstu næturnar ráða ríkjum.

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)