Í dag er nýtt tungl. Sést ekki á himni heldur ber fyrirheit um vaxandi hálfmánaljós þar til það nær fyllingu sinni á vetrarsólstöðum þann 21.desember. Síðasta fulla tungl ársins. Allt í sinni eilífu hringrás náttúrunnar, jólin að koma á ný með vonir um góðar fjölskyldustundir, kærleika, vináttu, góðan mat, gjafir og gleði.
Ég finn alltaf fyrir hve jólatíminn og skammdegið færir mann nær inn á við, líkt og björninn sem fer í hýðið. Þetta er mjög andlegur tími, tími hugleiðinga, hátíð ljóssins, uppgjör fyrir árið sem er senn á enda og væntingar fyrir nýja árið sem er handan við hornið. Árið fer sinn hring, og hver árstíð hefur sínar gjafir. Þessi tími gefur manni innsýn og sjálfsskoðun er ríkjandi. Það er líkt og þegar allt er í dvala í náttúrunni leitum við í hlýjuna inni og að auki lítum í eigin barm. Þetta er góður tími að fylgja því og vera meðvitaðri um innra landslag sitt. Gott er að skoða markmið næsta árs og sjá hvaða þætti maður vill breyta og bæta. Hvað vil ég taka inn í nýja árið? Til að vera í einstöku flæði með náttúruöflunum er einmitt hagstæður tími í dag. Forfeður okkar litu það heillamerki að hefja eitthvað nýtt á nýju vaxandi tungli og settu fram ósk og bænir sem eiga að ná fram á fullu tungli. Á nýju tungli er einstaklega hagstætt að skoða það sem við viljum draga inn í líf okkar. Þannig dregst það góða inn í líf okkar líkt og vaxandi máninn. Þá erum við að vinna með rytma náttúrunnar, erum í samhljómi við það sem gerist umhverfis okkur.
Það er gott að skoða það góða sem hefur komið til okkar á árinu þannig að það fái að vaxa og dafna áfram og alla reynsluna sem hefur gefið okkur þroska og vöxt. Núna er tími til að gleðjast og njóta aðventunar og með þakklæti í hjarta skoða þær væntingar og óskir sem við setjum fram inn í nýja hringrás lífs okkar. Megi birtan og kærleikurinn vaxa innra með okkar meðan lengstu næturnar ráða ríkjum.

Goddess of light er svo yndislega falleg mynd.. Þvílíkur Gyðjukraftur sem streymir frá henni *** og skemmtilegt nýja bloggútlitið, frábært að fá að njóta myndanna þinna betur :) :D
SvaraEyða