13.12.10

Hugleiðing inn í daginn


Fyrsta hugsunin setur tón dagsins. Hvernig á hann að hljóma? Hvaða upplifun leita ég eftir í dag?
Ég ræð hvernig ég bregst við aðstæðum þó ég stjórna ekki öllum atburðum dagsins. Ég er meðvituð um tilfinningar mínar og hugsanir ef ég kýs að vera áhorfandinn. Áhorfandinn er í jafnvægi og er með yfirsýn. Hann er alltaf í núinu eins og meistari sem dvelur í visku og kærleika, þar er mátturinn. Allar athafnir og gjörðir eru góðar ef þær koma frá þessum stað. Kærleikur, viskan og mátturinn ætti að vera órjúfanleg heild. Allt sem sprettur þaðan er heilt. Við speglum innra jafnvægi í samskiptum okkar, orðum og athöfnum, við látum ekki stjórnast af egóinu, tilfinningunum og dramanu. Við erum okkar eigin meistarar og speglum það góða. Þarna er friður og þarna er gott að vera. Ég leitast eftir að vera betri í dag en í gær.

1 ummæli: