28.12.10

Ljós í myrkri


Hátíð ljóss og friðar nú um jól, merkilegur tími og helgur. Einnig sá dimmasti en ljósin í myrkrinu lýsa hann upp enda fögnuður vegna fæðingu frelsarans.
Um vetrarsólstöður er styrsti dagur ársins, myrkrið er sem mest en vonin um hækkandi sól handan við hornið. Í myrkrinu er hægt að skoða eigin skugga til að hreinsa þá, ásamt því að skoða ljósið og væntingar fyrir komandi ár. Þá er hægt að skrifa niður allt það sem við viljum losa okkur við, allt það sem er ekki að þjóna okkur lengur, gamla vana, neikvæðar hugsanir, gamlar sorgir, allt það neikvæða hvort sem það er huglægt, tilfinningalegt, andlegt eða veraldlegt. Síðan er hægt að gera smá athöfn, kveikja á kerti, skapa stemningu, biðja og brenna svo blaðið. Leyfa eldinum að eyða því í efninu líkt og þú sérð það eyðast úr eigin lífi. þannig setur maður ásetning sinn og ósk í verk.
Þá næst skrifum við niður allt það sem við viljum upplifa og finna á nýju ári, allt það góða sem við viljum draga til okkar, það getur verið tilfinning, ástand, veraldlegt, hvaðeina sem við þörfnumst. Það er gott að skrifa það niður, setja það niður í efnið sem markmið og bæn inn í nýtt ár. Setjumst svo niður í kyrrð og ró og finnum innra með okkur hvernig tilfinning það er að hafa þetta góða allt í kringum sig og innra með sér. Sjá það fyrir sér, hugleiða inn á það og vita að það mun koma. Geyma þetta blað, jafnvel skreyta það myndum og hengja upp. Við eigum það besta skilið. Finnum draumana okkar og förum björt inn í nýtt ár með hækkandi sól.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli