17.11.10

Sköpunarkrafturinn

Sköpunarkrafturinn er stórkostlegur kraftur. Hann á við svo breytt svið, allt frá undrum og upphafi lífs, yfir í okkar jarðneska veruleika og athafnir. Sköpunarkrafturinn er líkt og ósýnilegur þráður sem vefur sig inn í allan veruleikann, hann er alltaf að verki, bæði óséður eða meðvitaður. Hann er skapandi hugur okkar, allt mannlegt sem við sjáum og jarðnesk náttúruöfl ásamt alheiminum. Við finnum þræði inn í vef hans og tökum þátt í sköpuninni sem á sér stað allar stundir. Þegar við finnum fyrir mætti hans erum við í núinu, í takti við umhverfið og okkur sjálf og þá er eins og flóðgáttir hugmynda og innblásturs fylla vit okkar. Það er líkt og einhver önnur vitundarsvið opnast og allt verður svo skýrt og augljóst. Ný sköpun kemur fram og við verðum þátttakendur í sköpunarverkinu.
Ætli þetta sé raunin hjá hinum sanna listamanni? Ég veit að þetta hljómar háfleygt en við öll getum verið þátttakendur og notið sköpunarkraftinn sem býr innra með okkur. Við erum öll skaparar, við erum öll með skapandi huga, og getum haft áhrif á umhverfi okkar á áþreifanlegan hátt eða í gegnum orð okkar og hugmyndir.
Sköpunarparturinn hefur verið tileinkaður hægra heilahvelinu okkar þar sem undirmeðvitund, tilfinningar og myndræn úrvinnsla býr einnig, í hinu vinstra er rökhugsunin, málstöðin og greinandinn. Við erum víst misjafnlega sterk með notkun á hægri eða vinstra heilahveli en því meira sem við örvum báða þessa þætti innra með okkur, erum við að nýta hæfileika okkar í meira mæli. Það er því nauðsynlegt að rækta sinn innri skapara því í nútíma þjóðfélagi er svo rík tilhneiging að hampa þessum "vinstri" eiginleikum, karlægu  þáttunum; analytikin, rökhugsunin og ræðumennskan. Góðir og nauðsynlegir eiginleikar sem við öll þurfum að hafa í lagi en það er alveg komin tími til að efla  kvenhliðina okkar, hægra heilahvelið þar sem tilfinngavitundin, sköpunin og innsæið býr. Við þurfum jafnvægi allstaðar en því miður virðist það jafnvægi ekki speglast í samfélaginu í dag. Því meira sem við örvum sköpunarhliðina því meira verður um skapandi lausnir á vandamálum, við finnum leið út út "boxinu", meiri gleði og flæði.
Sköpunarkrafturinn er því ekki eingöngu gefinn listamönnum og tengist því ekki eingöngu listum, heldur er það einnig skapandi hugsun og úrlausnir sem getum nýtt okkur.
Örvum sköpunina, eldum eftir nefinu og bragðskyninu, notum liti, teiknum, litum, málum, prjónum, hugstormum, hugleiðum, notum skynfærin, horfum upp, sjáum á nýjan leik, förum aðra leið í vinnuna, förum út úr rútínunni, sjáum litlu hlutina, leikum með börnunum, dönsum og dreymum með bros á vör og jafnvægi í hjarta.

11.11.10

Vindar umbreytinga

Vindurinn er máttugur í dag. Hann lætur finna fyrir sér og blés ísköldu framan í okkur í dag. Hann er kröftugur. Allt gnauðar þegar ég sit uppi í risi með kerti og kósý inni, en úti blæs. Vindhörpurnar fyrir utan syngja í kapp og laus plata nágrannans slæst í vegginn án afláts. Vá hvað ég er þakklát að hafa þak yfir höfuðið í svona veðri. Núna er þessi yndislegi innitími að ganga í garð. Orðið virkilega kalt og nauðsynlegt að fá sér heitt súkkulaði með rjóma eftir að hafa henst á milli húsa í borginni. Sérstaklega þegar maður er fótgangandi. En núna er einmitt tíminn að finna fyrir náttúruöflunum, læra af þeim, finna frumkraftana innra og ytra og staldra við. Hvað getur vindurinn kennt okkur? Hvað er hann að feykja á brott? Vindurinn staldrar aldrei við, alltaf síhvikur, hreyfir við öllu, staðnar ekki, á stöðugu ferðalagi milli króka og kima. Lætur laufblöðin dansa í hringi, pirrar okkur, en við leyfum okkur ekki að dansa með honum. Hefur þú einhvern tímann dansað við vindinn? Hvernig ætli það sé? Maggý jógakennari sagði mér frá að Monica hörpuleikari hafi á nýjustu plötunni sinni látið hörpuna út í vindinn og látið vindinn leika um hana fallega tóna sem eru víst alveg magnaðir.
Vindurinn er ekki svo slæmur, hann kallar fram breytingar og er hreinsandi. Af hverju erum við Íslendingar svona miklir innipúkar á veturna? Förum inn í hýði?  Forðumst vindinn og bölvum veðrinu? Væri ekki hressandi að taka fagnandi á móti hverju "nýju veðri"? Hlakka til að láta vindinn leika um sig og ímynda sér að hann sé að taka burt allt það sem er staðnað innra með sér, finna hann hreinsa hugann og koma lífsorkunni af stað. Fara í vindbað, algjör hreinsun. Vindurinn kallar á umbreytingar, rétt eins og norðanvindurinn hafði á aðalsöguhetjunni í kvikmyndinni "Chocolat", yndislegri mynd. Þegar norðanvindurinn byrjaði að blása, þá fann hún sér til hreyfings, hún varð eirðarlaus og fann þörf að flytja annað og byrja nýtt líf.
Hvað gæti norðanvindurinn verið að segja við okkur? Eigum við að stíga dans? Hverju á ég að sleppa? Hvað þarf ég að hreinsa? Leikum við vindinn og leyfum honum að hreyfa við okkur.

Frumkraftarnir okkar

Var að lesa um shamanisma, fornu leið máttar og krafts sem á svo við í dag. Þar er jafnvægi og samspil manns og náttúru, manneskjan er þátttakandi í orkudansi alheimsins. Við í nútímaþjóðfélagi höfum svo oft misst tengslin við náttúruna, bæði móður jörð og hina innri náttúru okkar og frumkrafta. Við missum af dansinum, stígum út fyrir, erum ekki í samhljómi við takt lífsins. Finnumst við utanveltu, erum ekki í sambandi eða í einingu við allt sem er. Einingin er tengslin við móðir jörð og okkar kjarna og þannig við allt líf. Allt er samspil, jafnvægi, frumkraftar orku sem leika í hringiðu heimsins. Þessi orkudans getum við tekið þátt í, fundið kraftinn, máttinn innra með okkur og breytt lífi okkar og annarra á jákvæðan hátt. Notað viljann okkar, ásetning og markmið í rétta átt. Fundið að við erum ekki máttvana leiksoppar örlaganna. Við erum virkir skaparar í lífi okkar. Frumkraftarnir innra með okkur eru; vindar hugsananna sem færa okkur hugmyndirnar, eldmóðurinn er ástríðan sem drífur okkur áfram, svo færum við mátt jarðarinnar yfir í efnið með því að taka frumkvæði og vatn tilfinninganna  gefur okkur ástina, gleðina og aðrar máttugar tilfinningar sem  glæða sköpunina lífi og staðsetur okkur á leiðinni. Hið síbreytilega tilfinningavatn gefur okkur til kynna hvort eitthvað þarf að breyta. Er ég á réttri leið? eða þarf ég að fara aðra leið? Andlegi þátturinn er orkan bakvið allt þetta flæði, sem gefur okkur neistann og þennan titrandi lífskraft og við finnum að við erum á lífi.

1.11.10

Jákvæð hugrækt

Rigningardagur að kveldi kominn. Það var greinilega lægð yfir í dag. Ótrúlegt hvað maður skynjar lægð, erfiðara á fætur og þyngri orka yfir manni, það er eins og hugsanirnar verða aðeins þyngri, jafnvel neikvæðari. Við erum víst 80% vatn þannig að lægð hefur áhrif á okkur. En svo er einmitt galdurinn að reyna að láta þessi ytri áhrif hvort sem það er veðrið, fjármálin, neikvætt fólk eða atburðir, ekki hafa svona mikil áhrif á sig. Það væri yndislegt að vera eins og þessir andlegu viskumeistarar og  gúrúar sem halda sinni innri ró og jafnvægi sama hvað á dynur. Vera komin á þann stað að geta verið í fullkominni ró innra með sér,  með jákvæðar hugsanir, gleði og kærleika öllum stundum þrátt fyrir stormviðri lífsins. Festast ekki í dramanu heldur vera með yfirsýnina. Vera ekki eins og lauf í vindi, þar sem vindar uppákoma, samskipta, tilfinninga og hugsanna þeyta manni til og frá í ólgusjó lífsins.
En hver er galdurinn? Svarið gæti verið auðvelt en það er erfiðara að láta reyna á það. Skóli lífsins er t.d. að vera ekki þessi strengjabrúða ytri aðstæðna sem hefur áhrif á hug okkar og tilfinningar og tekur við stjórninni. Ég held reyndar að það sé bara eitt af mörgum verkefnum okkar hér á jörð. Það er mikilvægt að ná að stjórna starfstækjum persónuleika okkar þ.e.a.s. huga okkar og tilfinningum.  Í einni bókinni sem ég hef lesið, Soul Psychology eftir Joshua David Stone, talar hann um að breyta hugsunum okkar og þar með tilfinningum. Gæði lífs okkar veltur mikið á að þessir hugrænu og tilfinningaþættir séu í jafnvægi annars eru við ekki við stjórn heldum látum stjórnast. Það er margt sem þarf að breyta í huganum. Einhver gæti séð hugann eins og tölvu. Það þarf að fara í harða diskinn og hreinsa og "delete-a" fullt af gögnum. Þarna eru ýmis skoðanakerfi sem hafa komið frá barnæsku, samfélaginu, hópþrýstingi o.fl. allskonar hugmyndir sem við höfum um okkur sjálf, oft neikvæð skilaboð sem sitja sem fastast. Hugmyndir eins og "ég er ekki nógu góð", "ég get þetta ekki", og "ég er ekki með hæfileika" eru þarna t.d.ásamt fleiri skilaboðum frá umhverfinu. Foreldrar hafa víðtæk áhrif á börn sín með skilaboðum sem börn gleypa við eins og svampar og verða að sterkri hugmynd í undirmeðvitund barnsins. Það er ótrúlegt hvað þessi skilaboð og fleiri geta haft hamlandi áhrif á líf manneskjunnar ef þau eru neikvæð.
En þá er einmitt að rækta jákvæðan huga. Ég sé hugann sem garð (auðvitað ;)). Garð sem ég þarf að rækta. Ég þarf að skoða hvað vex í huganum mínum. Jákvæðar hugsanir virka eins og vítamín í garðinn minn. Í garðinum mínum eru blóm (hugmyndir og draumar) og illgresi (neikvæð skoðanakerfi og neikvæðar hugsanir). Ég þarf reglulega að hreinsa til í garðinum og taka illgresið og setja í staðinn falleg blóm. Það sem virkar best eru jákvæðar staðhæfingar  (ég er skapandi, ég er frábær eins og ég er osfrv.) Það þarf að setja eitthvað annað í staðinn fyrir neikvæðnina. Svo þarf garðyrkjumaðurinn að vera vakandi yfir garðinum sínum, ekki láta illgresið taka yfir. Þegar neikvæð hugsun eða hugmynd poppar upp þarf að setja jákvæða inn í staðinn. Þetta er heilmikil innri vinna en svo mikilvæg. Við erum skaparar í lífi okkar og þarna í huga okkar verður allt fyrst til. Allt sem við horfum á í kringum okkar var fyrst til í huga manns, hús, hönnun, uppfinning áður en það færist yfir í efnissviðið. Sagt er að heimurinn var fyrst til í huga Guðs.
Hugræktin mín er hugleiðsla, meðvitund og jákvæðar staðhæfingar. Ræktum fallega garða innra með okkur. Þar getum við kyrrt hugann, fundið hugaró og dreymt fallega drauma inn í veruleikann.