11.11.10

Vindar umbreytinga

Vindurinn er máttugur í dag. Hann lætur finna fyrir sér og blés ísköldu framan í okkur í dag. Hann er kröftugur. Allt gnauðar þegar ég sit uppi í risi með kerti og kósý inni, en úti blæs. Vindhörpurnar fyrir utan syngja í kapp og laus plata nágrannans slæst í vegginn án afláts. Vá hvað ég er þakklát að hafa þak yfir höfuðið í svona veðri. Núna er þessi yndislegi innitími að ganga í garð. Orðið virkilega kalt og nauðsynlegt að fá sér heitt súkkulaði með rjóma eftir að hafa henst á milli húsa í borginni. Sérstaklega þegar maður er fótgangandi. En núna er einmitt tíminn að finna fyrir náttúruöflunum, læra af þeim, finna frumkraftana innra og ytra og staldra við. Hvað getur vindurinn kennt okkur? Hvað er hann að feykja á brott? Vindurinn staldrar aldrei við, alltaf síhvikur, hreyfir við öllu, staðnar ekki, á stöðugu ferðalagi milli króka og kima. Lætur laufblöðin dansa í hringi, pirrar okkur, en við leyfum okkur ekki að dansa með honum. Hefur þú einhvern tímann dansað við vindinn? Hvernig ætli það sé? Maggý jógakennari sagði mér frá að Monica hörpuleikari hafi á nýjustu plötunni sinni látið hörpuna út í vindinn og látið vindinn leika um hana fallega tóna sem eru víst alveg magnaðir.
Vindurinn er ekki svo slæmur, hann kallar fram breytingar og er hreinsandi. Af hverju erum við Íslendingar svona miklir innipúkar á veturna? Förum inn í hýði?  Forðumst vindinn og bölvum veðrinu? Væri ekki hressandi að taka fagnandi á móti hverju "nýju veðri"? Hlakka til að láta vindinn leika um sig og ímynda sér að hann sé að taka burt allt það sem er staðnað innra með sér, finna hann hreinsa hugann og koma lífsorkunni af stað. Fara í vindbað, algjör hreinsun. Vindurinn kallar á umbreytingar, rétt eins og norðanvindurinn hafði á aðalsöguhetjunni í kvikmyndinni "Chocolat", yndislegri mynd. Þegar norðanvindurinn byrjaði að blása, þá fann hún sér til hreyfings, hún varð eirðarlaus og fann þörf að flytja annað og byrja nýtt líf.
Hvað gæti norðanvindurinn verið að segja við okkur? Eigum við að stíga dans? Hverju á ég að sleppa? Hvað þarf ég að hreinsa? Leikum við vindinn og leyfum honum að hreyfa við okkur.

2 ummæli:

  1. Skemmtileg pæling! Maður hefur alltaf sjálfkrafa svolítið neikvæða hugmynd um vindinn. En vindurinn hefur klárlega fleiri fleti..

    SvaraEyða
  2. Þegar ég var búin að lesa helmingin byrjaði að hljóma kunnuglegt lag...Wind of Changes með Scorpions...vá elskaði þetta lag á sínum tíma : )
    Þetta er svo rétt...að taka fagnandi á móti vindinum og öllum ólíku veðráttunum sem hver og ein hefur sinn umbreytingar og heilunarkraft.
    Nú er það frostið sem ég er að leyfa að koma inn...þar sem ég ligg undir feldinum! : )

    SvaraEyða