11.11.10

Frumkraftarnir okkar

Var að lesa um shamanisma, fornu leið máttar og krafts sem á svo við í dag. Þar er jafnvægi og samspil manns og náttúru, manneskjan er þátttakandi í orkudansi alheimsins. Við í nútímaþjóðfélagi höfum svo oft misst tengslin við náttúruna, bæði móður jörð og hina innri náttúru okkar og frumkrafta. Við missum af dansinum, stígum út fyrir, erum ekki í samhljómi við takt lífsins. Finnumst við utanveltu, erum ekki í sambandi eða í einingu við allt sem er. Einingin er tengslin við móðir jörð og okkar kjarna og þannig við allt líf. Allt er samspil, jafnvægi, frumkraftar orku sem leika í hringiðu heimsins. Þessi orkudans getum við tekið þátt í, fundið kraftinn, máttinn innra með okkur og breytt lífi okkar og annarra á jákvæðan hátt. Notað viljann okkar, ásetning og markmið í rétta átt. Fundið að við erum ekki máttvana leiksoppar örlaganna. Við erum virkir skaparar í lífi okkar. Frumkraftarnir innra með okkur eru; vindar hugsananna sem færa okkur hugmyndirnar, eldmóðurinn er ástríðan sem drífur okkur áfram, svo færum við mátt jarðarinnar yfir í efnið með því að taka frumkvæði og vatn tilfinninganna  gefur okkur ástina, gleðina og aðrar máttugar tilfinningar sem  glæða sköpunina lífi og staðsetur okkur á leiðinni. Hið síbreytilega tilfinningavatn gefur okkur til kynna hvort eitthvað þarf að breyta. Er ég á réttri leið? eða þarf ég að fara aðra leið? Andlegi þátturinn er orkan bakvið allt þetta flæði, sem gefur okkur neistann og þennan titrandi lífskraft og við finnum að við erum á lífi.

2 ummæli:

  1. Já, þetta er góður dagur til þess að hugsa meðvitað um frumkraftana sína. Þessa dínamík sem er hið innra og allt um kring. Vera með í dansinum. Takk fyrir áminninguna inn í daginn :) Vindurinn tók einmitt á móti mér í morgun þegar ég gekk út, og nú er sólin að koma svo fallega upp bakvið Bláfjöllin. Að upplifa tenginguna við lífið, svo yndislegt*

    SvaraEyða