Sköpunarkrafturinn er stórkostlegur kraftur. Hann á við svo breytt svið, allt frá undrum og upphafi lífs, yfir í okkar jarðneska veruleika og athafnir. Sköpunarkrafturinn er líkt og ósýnilegur þráður sem vefur sig inn í allan veruleikann, hann er alltaf að verki, bæði óséður eða meðvitaður. Hann er skapandi hugur okkar, allt mannlegt sem við sjáum og jarðnesk náttúruöfl ásamt alheiminum. Við finnum þræði inn í vef hans og tökum þátt í sköpuninni sem á sér stað allar stundir. Þegar við finnum fyrir mætti hans erum við í núinu, í takti við umhverfið og okkur sjálf og þá er eins og flóðgáttir hugmynda og innblásturs fylla vit okkar. Það er líkt og einhver önnur vitundarsvið opnast og allt verður svo skýrt og augljóst. Ný sköpun kemur fram og við verðum þátttakendur í sköpunarverkinu.
Ætli þetta sé raunin hjá hinum sanna listamanni? Ég veit að þetta hljómar háfleygt en við öll getum verið þátttakendur og notið sköpunarkraftinn sem býr innra með okkur. Við erum öll skaparar, við erum öll með skapandi huga, og getum haft áhrif á umhverfi okkar á áþreifanlegan hátt eða í gegnum orð okkar og hugmyndir.
Sköpunarparturinn hefur verið tileinkaður hægra heilahvelinu okkar þar sem undirmeðvitund, tilfinningar og myndræn úrvinnsla býr einnig, í hinu vinstra er rökhugsunin, málstöðin og greinandinn. Við erum víst misjafnlega sterk með notkun á hægri eða vinstra heilahveli en því meira sem við örvum báða þessa þætti innra með okkur, erum við að nýta hæfileika okkar í meira mæli. Það er því nauðsynlegt að rækta sinn innri skapara því í nútíma þjóðfélagi er svo rík tilhneiging að hampa þessum "vinstri" eiginleikum, karlægu þáttunum; analytikin, rökhugsunin og ræðumennskan. Góðir og nauðsynlegir eiginleikar sem við öll þurfum að hafa í lagi en það er alveg komin tími til að efla kvenhliðina okkar, hægra heilahvelið þar sem tilfinngavitundin, sköpunin og innsæið býr. Við þurfum jafnvægi allstaðar en því miður virðist það jafnvægi ekki speglast í samfélaginu í dag. Því meira sem við örvum sköpunarhliðina því meira verður um skapandi lausnir á vandamálum, við finnum leið út út "boxinu", meiri gleði og flæði.
Sköpunarkrafturinn er því ekki eingöngu gefinn listamönnum og tengist því ekki eingöngu listum, heldur er það einnig skapandi hugsun og úrlausnir sem getum nýtt okkur.
Örvum sköpunina, eldum eftir nefinu og bragðskyninu, notum liti, teiknum, litum, málum, prjónum, hugstormum, hugleiðum, notum skynfærin, horfum upp, sjáum á nýjan leik, förum aðra leið í vinnuna, förum út úr rútínunni, sjáum litlu hlutina, leikum með börnunum, dönsum og dreymum með bros á vör og jafnvægi í hjarta.
Frábær lesning :):D
SvaraEyðaJá eins og Sóley sagði...frábær lesning!....svo flæðandi og lifandi.
SvaraEyðaSkapandi hugsun er lausnin..að hugsa út fyrir boxið....þá gerast kraftaverkin. Að heiðra skaparann sem býr innra með okkur : )